Forsíða

Fagráð ríkislögreglustjóra er ráð óháðra fagaðila sem tekur á móti fyrirspurnum og tilkynningum þolenda og öðru starfsfólki lögreglu um mál er varða beina og óbeina mismunun, kynbundna áreitni, kynferðislega áreitni, kynbundið ofbeldi og einelti innan lögreglunnar.

Allt starfsfólk lögreglu á rétt á að fá aðstoð og leiðsögn hjá fagráðinu. Fagráðið aðstoðar við að meta aðstæður og ákveða frekari aðgerðir, en á því stigi gætir ráðið trúnaðar gagnvart tilkynnanda.